Heimavistarráð

Heimavistarráð Heimavistarráð er hagsmunaráð íbúa skipað 7 fulltrúum, 4 úr MA og 3 úr VMA. Þeir sem eru í heimavistarráði eru einnig í mötuneytisráði.

Heimavistarráð

Heimavistarráð

Heimavistarráð er hagsmunaráð íbúa skipað 7 fulltrúum, 4 úr MA og 3 úr VMA. Þeir sem eru í heimavistarráði eru einnig í mötuneytisráði. Allir íbúar geta boðið sig fram og allir eru með kosningarétt. Embætti heimavistarráðs eru forseti og ritari. Forseti stjórnar fundum þess og undirbýr mál er varða heimavistina og íbúa hennar. Ritari heldur fundabók um fundi ráðsins og annast skjalavörslu. Ritari er jafnframt aðstoðarmaður forseta og staðgengill hans. Forseti skiptir öðrum verkum með heimavistarráðsfulltrúum eftir því sem hann telur þörf á.

Heimavistarráð er með fund einu sinni í viku með Simma húsbónda. Þar eru rædd þau mál sem upp koma og fulltrúar geta komið með tillögur um hvað má fara betur á vistinni. Heimavistarráð fundar einnig með skólameisturum og framkvæmdastjóra Lundar að minnsta kosti einu sinni á önn. Heimavistarráð tekur að sér mjög fjölbreytt verkefni sem varða hagsmuni íbúa, aðbúnað á herbergjum og sameiginlegum rýmum. T.d ef þér finnst vanta sófa í sjónvarpsherbergi eða vilt oftar fá skúffuköku í drukk, þá er mjög auðvelt að tala við fulltrúa heimavistarráðs sem koma svo tillögunum á framfæri. Einnig stendur ráðið fyrir nokkrum uppákomum yfir veturinn. Dæmi um það sem heimavistarráð hefur gert undanfarin ár er t.d.sjónvarpsherbergi, jólahlaðborð, ljósmyndakeppni, jólaskreytingakeppni, leynivinavika, samkomur í setustofu, bíóferðir o.fl.

 


Svæði

Heimavist ma og vma

v/ Eyrarlandsveg 28
IS 600 Akureyri
heimavist@heimavist.is 

Helstu símanúmer

  • Vaktsími Heimavistar: 899 1602
  • Afgreiðsla: 455 1602
  • Þjónustustjóri: 455 1607 / 899 1607
  • Heimavistarstjóri: 455 1605
  • Viðtalssími hjúkrunarfræðings: 455 1611
  • Mötuneytið: 455 1604
  • Þvottahús: 455 1606
  • Neyðarlínan: 112