1.árs nemar

Víkingur Hauksson1) Hvaðan ertu? Sigluvík á Svalbarðsströnd2) Í hvaða skóla ertu? MA3) Hvað ertu búinn að vera lengi á vistinni? Er á fyrsta ári4) Í

1. árs nemar

Víkingur Hauksson

1) Hvaðan ertu? Sigluvík á Svalbarðsströnd
2) Í hvaða skóla ertu? MA
3) Hvað ertu búinn að vera lengi á vistinni? Er á fyrsta ári
4) Í hvernig herbergi? Tveggja manna á nýju vist á 2. hæð

vkingur_640x480_320x200
5) Hverjir eru helstu kostirnir við að búa á vist? Frelsið
6) En gallarnir? Hugsar sig lengi um...Ekkert sem mér dettur í hug núna
7) Besti matur sem þú hefur smakkað í mötuneytinu? Fiskurinn er bestur
8) En versti? Lengimatur
9) Var erfitt að fara að heiman? Nei, ég bý korter frá
10) Hefur þú eða þekkir þú einhvern sem hefur gert prakkarastrik á vistinni? Já, ég geymdi mjólkurfernu þar til hún var orðin vel úldin, setti hana undir rúmið hjá tveimur frænkum mínum og þar var hún í um tvær vikur þar til þær fundu hana. Lyktin var ÓGEÐSLEG (ólíft inni í herberginu) og þær voru lengi að fatta hvaðan hún kom. Fóru meira að segja út með ruslið tvisvar á dag því þær héldu að lyktin kæmi þaðan


Sigríður Árdal

1) Hvaðan ertu? Dæli í Fnjóskadal
2) Í hvaða skóla ertu? MA
3) Hvað ertu búin að vera lengi á vistinni? Er á fyrsta ári
4) Í hvernig herbergi? Í tveggja manna herbergi á þriðju hæð

sigga_rdal_640x480_320x200

5) Hverjir eru helstu kostirnir við að búa á vist? Alltaf eitthvað um að vera, samanbrotinn þvottur, tilbúinn matur í mötuneytinu og margir vinir mínir eru hérna
6) En gallarnir? Stundum er of lítið næði
7) Besti matur sem þú hefur smakkað í mötuneytinu? Kjúklinga fajitas
8) En versti? Einu sinni var mjólkurgrauturinn öðruvísi en venjulega og hann var ógeðslega vondur
9) Var erfitt að fara að heiman? Nei, ég bý ekki það langt í burtu og það er alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt
10) Hefur þú eða þekkir þú einhvern sem hefur gert prakkarastrik á vistinni? Já, ég og herbergisfélagi minn tókum vel úldinn banana og settum í nærbuxnaskúffuna hjá félaga okkar


  
 

Svæði

Heimavist ma og vma

v/ Eyrarlandsveg 28
IS 600 Akureyri
heimavist@heimavist.is 

Helstu símanúmer

  • Vaktsími Heimavistar: 899 1602
  • Afgreiðsla: 455 1602
  • Þjónustustjóri: 455 1607 / 899 1607
  • Heimavistarstjóri: 455 1605
  • Viðtalssími hjúkrunarfræðings: 455 1611
  • Mötuneytið: 455 1604
  • Þvottahús: 455 1606
  • Neyðarlínan: 112