2. árs nemar

Anna Björg Þorvaldsdóttir1) Hvaðan ertu? Dalvík2) Í hvaða skóla ertu? VMA3) Hvað ertu búin að vera lengi á vistinni? Ég er á öðru ári4) Í hvernig herbergi

2. árs nemar

Anna Björg Þorvaldsdóttir

1) Hvaðan ertu? Dalvík
2) Í hvaða skóla ertu? VMA
3) Hvað ertu búin að vera lengi á vistinni? Ég er á öðru ári
4) Í hvernig herbergi hefur þú verið? Á nýju vistinni bæði árin
anna_640x480_320x200
5) Hverjir eru helstu kostirnir við að búa á vist? Maður kynnist nýju fólki og það er bara fínt að vera hérna
6) En gallarnir? Vondur matur
7) Besti matur sem þú hefur smakkað í mötuneytinu? Lengimatur, taco og sunnudagsmaturinn
8) En versti? Fiskur og kjötbollur
9) Hefur þú eða þekkir þú einhvern sem hefur gert prakkarastrik á vistinni? Já, ég veit um eitt. Vinir mínir hentu vatnsblöðrum út um gluggann á fólkið sem var að labba fyrir utan vistina

 

Jóhann Ingi Þorsteinsson

1) Gælunöfn? Jói litli
2) Hvaðan ertu? Flateyri
3) Í hvaða skóla ertu? VMA
4) Hvað ertu búinn að vera lengi á vistinni? Er á öðru ári
ji_640x480_320x200
5) Í hvernig herbergi? Á gömlu vist á kvennavist, á nýju í smá tíma og á þriðju hæð á gömlu í smá tíma
6) Hvora vistina „fílarðu” betur? Það er þægilegra að vera einn í herbergi ef maður vill það en það er óþægilegt að vera ekki með ísskáp og sjónvarp
7) Hverjir eru helstu kostirnir við að búa á vist? Bara allir vinir manns eru á einum stað
8) En gallarnir? Að mega ekki koma fullur heim
9) Besti matur sem þú hefur smakkað í mötuneytinu? Heyrðu það er hérna kjúklingaborgari
10) En versti? Það er nú oft slæmur matur hérna, en hakkið er langverst af öllu. Eins og einhver vatnssósa. Maður þarf ekki einu sinni að tyggja þetta
11) Hefur þú eða þekkir þú einhvern sem hefur gert prakkarastrik á vistinni? Já, en það var reyndar ekki ég. Mér fannst mjög fyndið þegar búið var að binda hurðina hjá félaga mínum við brunarör og hann komst því ekki út. Allir voru farnir í skólann nema ég og hann

 

Fjóla María Jónsdóttir

1) Hvaðan ertu? Bíldudal á Vestfjörðum
2) Í hvaða skóla ertu? MA
3) Hvað ertu búin að vera lengi á vistinni? Mitt annað ár á vist
4) Í hvernig herbergi? Í fyrra var ég í tveggja manna á nýju vist en nú í eins manns með baði (svítu)
arshatid1_640x480_320x200
5) Hvora vistina „fílarðu” betur? Gömlu vistina, af því að hún er heimilislegri og mér finnst vera betri andi þar
6) Hverjir eru helstu kostirnir við að búa á vist? Maður þarf ekki að hugsa út í rafmagns- eða viðgerðarreikninga. Það líka aldrei dauður tími á vistinni
7) En gallarnir? Að geta ekki eldað sjálfur, sumar reglurnar eins og að geta ekki verið með gesti hvenær sem er t.d. í próftíð o.fl.
8) Besti matur sem þú hefur smakkað í mötuneytinu? Af týpískum matseðli sem er á vistinni þá finnst mér kjúklingur og fajitas best
9) En versti? Löng þögn....Svo margt, get ekki valið á milli
10) Hver er skemmtilegast næturvörðurinn sem hefur verið síðan þú byrjaðir á vist? Nonni

Svæði

Heimavist ma og vma

v/ Eyrarlandsveg 28
IS 600 Akureyri
heimavist@heimavist.is 

Helstu símanúmer

  • Vaktsími Heimavistar: 899 1602
  • Afgreiðsla: 455 1602
  • Þjónustustjóri: 455 1607 / 899 1607
  • Heimavistarstjóri: 455 1605
  • Viðtalssími hjúkrunarfræðings: 455 1611
  • Mötuneytið: 455 1604
  • Þvottahús: 455 1606
  • Neyðarlínan: 112