Eiríkur Páll Aðalsteinsson
| 1) Gælunafn? Eiki 2) Hvaðan ertu? Vopnafirði 3) Í hvaða skóla ertu? VMA 4) Hvað ertu búinn að vera lengi á vistinni? Þrjú ár með hléi | ![]() |
| 5) Í hvernig herbergi? Á nýju vistinni 6) Hverjir eru helstu kostirnir við að búa á vist? Fólkið er skemmtilegt, starfsfólkið magnað og svo er alltaf gott að þurfa ekki að þrífa af sér 7) En gallarnir? Mér finnst þetta allt fínt sko 8) Besti matur sem þú hefur smakkað í mötuneytinu? Silungur eða lax sem var þarna einhvern tímann 9) En versti? Hakkið þeirra, það er búið að mauka það niður 10) Hver er skemmtilegasti næturvörðurinn sem hefur verið síðan þú byrjaðir á vist? Jón 11) Hefur þú eða þekkir þú einhvern sem hefur gert prakkarastrik á vistinni? Sjitt..Hvað þau eru mörg. Ég kveikti í svölunum á vistinni. Og ég og fleiri rústuðum herbergi hjá vinkonum okkar. Settum vaselín á spegla, á hurðarhúna, tókum fötin úr skápunum o.fl. Ég hef líka brennt hár á mönnum sofandi | |
Sigurlaug Hanna Hafliðadóttir
| 1) Hvaðan ertu? Urðum í Svarfaðardal 2) Í hvaða skóla ertu? MA 3) Hvað ertu búin að vera lengi á vistinni? Er á þriðja ári 4) Í hvernig herbergi? Fyrstu tvö árin var ég á nýju vistinni og nú er ég á gömlu | ![]() |
| 5) Hvora vistina „fílarðu” betur og af hverju? Gömlu held ég af því að maður umgengst fleira fólk og kynnist fleirum 6) Hverjir eru helstu kostirnir við að búa á vist? Stutt í skólann og maður kynnist fólki 7) En gallarnir? Það kostar svolítið mikið og stundum er smá hávaði en það fælir mig samt ekki frá því að vera hér 8) Besti matur sem þú hefur smakkað í mötuneytinu? Kjúklinga fajitas 9) En versti? Humm..Ég eiginlega veit það ekki alveg 10) Hver er skemmtilegasti næturvörðurinn sem hefur verið síðan þú byrjaðir á vist? Mér fannst Maggi bestur, hann var svo vingjarnlegur 11) Hefur þú eða þekkir þú einhvern sem hefur gert prakkarastrik á vistinni? Nei, ég man nú ekki eftir neinu í augnablikinu | |
Pálmi Sigurjónsson
| 1) Hvaðan ertu? Hjarðarhaga í Skagafirði 2) Í hvaða skóla ertu? MA 3) Hvað ertu búinn að vera lengi á vistinni? Þrjú ár 4) Í hvernig herbergi? Á nýju fyrstu tvö árin og svo á annarri hæð gömlu | ![]() |
| 5) Hvora vistina „fílarðu” betur og af hverju? Ég get ekki gert upp á milli. Þetta hefur allt sína kosti og galla 6) Hverjir eru helstu kostirnir við að búa á vist? Ég þarf ekki að þrífa eða elda sjálfur 7) En gallarnir? Það má ekki hrynja í það 8) Besti matur sem þú hefur smakkað í mötuneytinu? Kjúklingabringurnar sem voru um daginn 9) En versti? Gúllasið sem ég fékk matareitrun af 10) Hver er skemmtilegasti næturvörðurinn sem hefur verið síðan þú byrjaðir á vist? Það er annað hvort Maggi eða Jón 11) Hefur þú eða þekkir þú einhvern sem hefur gert prakkarastrik á vistinni? Að sjálfsögðu og það var gert við mig, svörtum ruslapoka var skellt yfir allan efri hluta líkamans og svo teypuðu þeir allan hringinn og hentu mér fram á gang. | |


