4. árs nemar

Kristín Elísabet Alansdóttir 1) Gælunöfn? Kristín litla og Litla dýr2) Hvaðan ertu? Vestmannaeyjum3) Í hvaða skóla ertu? MA4) Hvað ertu búin að vera lengi

4. árs nemar

Kristín Elísabet Alansdóttir

1) Gælunöfn? Kristín litla og Litla dýr
2) Hvaðan ertu? Vestmannaeyjum
3) Í hvaða skóla ertu? MA
4) Hvað ertu búin að vera lengi á vistinni? Fjórða árið mitt
th_640x480_640
5) Í hvernig herbergi? Á fyrsta og öðru ári á herbergi á nýju vist, í bæði skiptin með rauðhærðum krullhærðum einstaklingum. Þriðja og fjórða árið mitt ein í herbergi 308 á gömlu vistinni
6) Hvora vistina „fílarðu” betur? Gömlu, af því hún er heimilislegri
7) Hverjir eru helstu kostirnir við að búa á vist? Maður er nálægt öllum vinum sínum og manni leiðist aldrei
8) En gallarnir? Hljóðeinangrunin á gömlu vistinni er hræðileg. Maður heyrir ALLT milli herbergja
9) Besti matur sem þú hefur smakkað í mötuneytinu? Blóðmör í jafningi
10) En versti? Þegar þau voru einhvern tímann með hveitiklatta með þurrkuðum baunum ofan á (allaveganna líktist það því mest þó ég hafi ekki áreiðanlegar heimildir fyrir því hvað þetta hafi verið) og ég var eina manneskjan í mötuneytinu fyrir utan þessar þrjár fullorðnu manneskjur sem hafði verið boðið þangað
11) Hver er skemmtilegast næturvörðurinn sem hefur verið síðan þú byrjaðir á vist? Maggi er langbestur, alltaf gott að tala við hann
12) Hefur þú eða þekkir þú einhvern sem hefur gert prakkarastrik á vistinni? Ég veit um heilan helling en mér er minnisstæðast þegar ein ákveðin ung dama kastaði epli ofan af 6. hæð og ég tók það upp á video. Ein vinkona mín þurfti að hlaupa á klósettið svo hún myndi ekki pissa á sig af hlátri og sú sem kastaði eplinu þreif það upp í hláturkasti

 

Guðni Líndal Benediktsson

1)Hvaðan ertu? Staðarhúsum í Borgarfirði
2)Í hvaða skóla ertu? MA
3)Hvað ertu búinn að vera lengi á vistinni? Fjórða árið mitt.
4)Í hvernig herbergi? Ég er búin að vera á nýju vistinni öll árin, sunnanmegin í byggingunni
guni_003_640x480_320x200
5)Nú ertu búinn að vera með sama herbergisfélaganum öll þessi ár, hvernig hefur það gengið? Sambúðin hefur gengið eins og í sögu, hið fullkomna hjónaband. Við erum langlífasta vistarparið eins og er
6)Hverjir eru helstu kostirnir við að búa á vist? Nálægt skólanum og það var allaveganna þannig að allir voru vinir hérna
7)En gallarnir? Það eru öryggisráðstafanirnar, það er svolítið deilt og drottnað í þessu. Fólk kemst upp með að koma fullt inn en svo er tekið óvenju hart á ótrúlegustu hlutum eins og að sjálfráða fólk þarf að sækja um leyfi til að fá næturgest. Mötuneytið og fiskiátakið
8)Besti matur sem þú hefur smakkað í mötuneytinu? Örugglega nautakjöt með bernaisse sósu
9)En versti? Nú þarf að hugsa sig um. Það er náttúrulega svikni hérinn, allur regnboginn mættur í einu kjötstykki
10)Hver er skemmtilegasti næturvörðurinn sem hefur verið síðan þú byrjaðir á vist? Maggi kemur sterkur inn
11)Hefur þú eða þekkir þú einhvern sem hefur gert prakkarastrik á vistinni? Jájá. Við fórum í vatnsslag innan veggja vistarinnar í 1.bekk og drekktum einni stelpunni. Síðan voru tveir gaurar í fyrra sem mökuðu leir á sig og vöktu alla. Svo var reykingaskiltið fjarlægt af einhverjum „óþokkum” í fyrra. Síðan líka þegar öllu draslinu hjá einum var snúið á hvolf þegar hann fór í burtu yfir helgi

 

Svæði

Heimavist ma og vma

v/ Eyrarlandsveg 28
IS 600 Akureyri
heimavist@heimavist.is 

Helstu símanúmer

  • Vaktsími Heimavistar: 899 1602
  • Afgreiðsla: 455 1602
  • Þjónustustjóri: 455 1607 / 899 1607
  • Heimavistarstjóri: 455 1605
  • Viðtalssími hjúkrunarfræðings: 455 1611
  • Mötuneytið: 455 1604
  • Þvottahús: 455 1606
  • Neyðarlínan: 112