Heimavistarráð

Það er ljúft líf að búa á heimavist. Hérna er allt til alls. Þú þarft ekki að elda. Þú þarft ekki að þvo af þér. Lítið að þrífa. Þú þarft bara að

Lífið á vistinni

Það er ljúft líf að búa á heimavist. Hérna er allt til alls.

  • Þú þarft ekki að elda.
  • Þú þarft ekki að þvo af þér.
  • Lítið að þrífa.
  • Þú þarft bara að mæta.

Ef viljinn er fyrir hendi þá getur þú kynnst fólki af öllu landinu. Því lengur sem þú ert á heimavist því stærri verður vinahópurinn. Krakkar koma og fara en aðrir dvelja lengur. Flestir eru fyrstu tvö árin og flytja svo út í bæ en þó eru alltaf einhverjir sem eru öll árin sín á heimavist. Ef fólki leiðist þá þarf ekki annað en að fara fram á gang eða banka upp hjá grannanum.

Oft halda vistarkrakkar vel hópinn innan sem utan skóla. Það getur verið ótrúlega þægilegt að vinna hópverkefni í skóla með öðrum vistarbúum, það er svo miklu minna vesen en annars. Þið búið í sama húsi og því tekur allt minni tíma.

Svæði

Heimavist ma og vma

v/ Eyrarlandsveg 28
IS 600 Akureyri
heimavist@heimavist.is 

Helstu símanúmer

  • Vaktsími Heimavistar: 899 1602
  • Afgreiðsla: 455 1602
  • Þjónustustjóri: 455 1607 / 899 1607
  • Heimavistarstjóri: 455 1605
  • Viðtalssími hjúkrunarfræðings: 455 1611
  • Mötuneytið: 455 1604
  • Þvottahús: 455 1606
  • Neyðarlínan: 112