Desemberpróf - umgengni á próftíma

Próftími hefst 6. desember.

Á próftíma á að vera næði allan sólarhringinn.
Ekki er heimilt að hafa hjá sér gesti nema með sérstöku leyfi starfsmanns. Ekki eru veitt leyfi fyrir næturgestum meðan á próftíma stendur.
Morgunmatur er virka daga kl. 7:15 – 9:15 og um helgar kl. 10:00 – 13:00. Drykkur er alla daga kl. 15:00 - 16:30, einnig um helgar.
Hljómflutningstæki og sjónvörp á herbergjum og setustofum mega alls ekki valda ónæði.
Seta í anddyri og á göngum skal takmörkuð.
Reglulegum próftíma lýkur 13. desember.
Hafið samband við öryggisvakt í síma 1602 ef þið verðið fyrir ónæði.
Gangi ykkur vel í prófunum og sýnum öll tillitssemi.