Próftími á heimavist

Nú er próftími á heimavistinni en þá gilda gilda ákveðnar reglur sem við biðjum alla að virða:

• Á próftíma á að vera næði allan sólarhringinn.
• Ekki er heimilt að hafa hjá sér gesti nema með sérstöku leyfi 
starfsmanns. 
• Ekki eru veitt leyfi fyrir næturgestum meðan á próftíma stendur.
• Morgunmatur er virka daga frá kl. 7:15 – 9:15 og um helgar kl. 
10:00 – 13:00. Drykkur er alla daga kl. 15:00 - 16:30, einnig um 
helgar.
• Tónlist og sjónvarp á herbergjum og á setustofu má
alls ekki valda ónæði.
• Seta í anddyri og á göngum á að vera takmörkuð.
• Bendum íbúum á að hafa samband við starfsmann á vakt í 
síma 1602 (úr borðsíma) ef þið verðið fyrir ónæði.

Gangi ykkur vel i prófunum og sýnum öll tillitssemi!