Uppsagnir á húsaleigusamnigi

Athygli er vakinn á því að uppsagnarfrestur húsaleigusamninga við annarskil er einn mánuður m.v. næstu mánaðarmót frá uppsögn samningsins. Þetta á eingöngu við þá nemendur sem hætta námi.

VMA-íbúar sem eru að hætta námi í lok desember verða að skila skriflegri uppsögn fyrir 30. nóvember til að komast hjá því að greiða húsaleigu eftir áramót.

Þeir VMA-íbúar sem hætta námi um annarskil vegna ófullnægjandi námsframvindu eiga að senda skriflega uppsögn til undirritaðrar um leið og niðurstaða annarprófa er ljós. Við þessar aðstæður er uppsagnarfresturinn einn mánuður frá næstu mánaðarmótum/áramótum og þeir munu því þurfa að greiða húsaleigu fyrir janúar.

MA-íbúar sem ljúka námi í janúar verða að skila skriflegri uppsögn í desember. Þeir sem hætta námi um annarskil vegna ófullnægjandi námsframvindu eiga að senda skriflega uppsögn til undirritaðrar um leið og niðurstaða annarprófa er ljós Við þessar aðstæður er uppsagnarfresturinn einn mánuður frá næstu mánaðarmótum og þeir munu því þurfa að greiða húsaleigu fyrir febrúar.

Uppsagnir skal senda á netfangið: rosa@heimavist.is