Viltu slást í hópinn og aðstoða okkur í vor!

Við erum að leita að starfsfólki til að aðstoða okkur tímabundið við þrif og frágang á húsnæði Heimavistar MA og VMA. 
Tímabilið er frá miðjum maí til 8. júní og er unnið frá kl. 08:00 -16:00.  
Allar nánari upplýsingar veitir Rósa María í síma 455 1607. Skriflegar umsóknir berist á netfangið: rosa@heimavist.is