Vöfflukaffi á sumardaginn fyrsta í boði Heimavistarráðs

Vegna veðurútlits hefur verið ákveðið að bjóða upp á vöfflukaffi á sumardaginn fyrsta í stað þess að grilla.  Heimavistarráð ætlar að baka vöfflur í tilefni dagsins og bjóða íbúum upp á vöfflukaffi frá kl. 15-16.30.  Þrátt fyrir veðurútlit þá hvetjum við íbúa til að mæta með bros á vör og í sumarskapi.