Reglur á próftíma

Reglur á heimavist á próftíma   Á heimavistinni gilda ákveðnar reglur þegar íbúar eru í prófum.  Próftími skarast hjá nemendum í MA og VMA og því er varir

Reglur á próftíma

Reglur á heimavist á próftíma

 

Á heimavistinni gilda ákveðnar reglur þegar íbúar eru í prófum.  Próftími skarast hjá nemendum í MA og VMA og því er varir próftíminn frá byrjun desember þegar VMA nemendur eru í prófum og út janúar þegar MA nemendur eru í prófum.

Reglur sem gilda á heimavist á próftíma

1. Á próftíma er ætlast til að það sé næði á heimavistinni allan sólarhringinn.

2. Ekki er heimilt að hafa næturgesti meðan á próftíma stendur.

3. Ítrekað er að einungis íbúum heimavistar er heimilt að vera á heimavistinni á próftíma.  Hægt er að sækja um undanþágu til vaktmanns fyrir gesti að degi til ef t.d. nemendur eru að vinna saman að verkefni eða að undirbúa sig fyrir próf.

4. Hljómflutningstæki og sjónvörp á herbergjum mega ekki valda ónæði. Ef útaf bregður, verða tækin fjarlægð við fyrsta brot.

5. Slökkt verður á hljómflutningstækjum og sjónvarpi í setustofu.

6. Seta á almenningum (anddyri og á göngum ) skal takmörkuð og ekki valda ónæði.

Svæði

Heimavist ma og vma

v/ Eyrarlandsveg 28
IS 600 Akureyri
heimavist@heimavist.is 

Helstu símanúmer

  • Vaktsími Heimavistar: 899 1602
  • Afgreiðsla: 455 1602
  • Þjónustustjóri: 455 1607 / 899 1607
  • Heimavistarstjóri: 455 1605
  • Viðtalssími hjúkrunarfræðings: 455 1611
  • Mötuneytið: 455 1604
  • Þvottahús: 455 1606
  • Neyðarlínan: 112