Heimavist MA og VMA
Nokkur atriði sem mikilvægt er að hafa í huga þegar farið er heim í haustfrí
Kæru íbúar!
Áður en þið farið heim í vetrarfrí vinsamlegast munið að:
- Hafa herbergin snyrtileg, þá verður svo gaman að koma aftur.
- Fara með allt rusl af herbergjum út í gám.
- Slökkva á rafmagnstækjum (nema ísskáp) og ljósum.
- Tæma ísskáp og örbylgjuofn.
- Loka gluggum.
- Stilla ofna á 3.
- Skrá brottför í heimferðaskráningu á heimasíðunni.
Muna að kíkja í þvottahúsið og tæma þvottahólfið.
Herbergjaskoðanir verða áfram á sömu dögum og vanalega.
Kær kveðja,
Uppsagnir á húsaleigusamningum fyrir þá íbúa sem hætta námi um áramót
Athygli er vakin á að uppsögn á húsaleigusamningi við annarskil hjá bæði MA og VMA íbúum er 30. nóvember n.k.
Gildir aðeins fyrir þá íbúa sem hætta námi um áramót.
Skila þarf skriflegri uppsögn fyrir þann tíma til að komast hjá því að greiða húsaleigu eftir annarskil. Best er að senda tölvupóst.
Þeir íbúar sem hætta námi um annarskil vegna ófullnægjandi námsframvindu þurfa að senda skriflega uppsögn í tölvupósti um leið og niðurstaða annarprófa liggur fyrir. Athugið að við þessar aðstæður er uppsagnarfresturinn einn mánuður eftir annarskil.
Nýtt heimavistarráð skólaárið 2026 - 2027
Kosið var til Heimavistarráðs í síðustu viku, miðvikudaginn 30. september.
Í heimavistarráði skólaárið 2026-2027 eru:
Ari Ingvarsson (MA)
Ágúst Helgi Franklínsson (VMA)
Bæring Nói Dagsson (MA)
Friðrik Árnason (MA)
Jóhann Lars Palleq Sigvarðsson (VMA)
Steingrímur Árni Jónsson (MA)
Sædís Ósk Pálmadóttir (VMA)
Kosning til Heimavistarráðs í kvöld, miðvikudaginn 30. september
Kosning til Heimavistarráðs verður á miðvikudaginn næstkomandi, 30. september. Allir íbúar geta kosið einu sinni.
Kosning fer fram í anddyri kl 19:30-21:00 á miðvikudagskvöld.
Kjörkassinn verður í móttökunni og hver og einn íbúi getur aðeins kosið einu sinni.  Hægt er að merkja við allt að sjö einstaklinga á seðilinn en athugið að ekki má merkja við fleiri en sjö. Fleiri krossar ógilda seðillinn.
Húsaleigusamningar
Við minnum íbúa og forráðamenn á að hægt er að hlaða niður afrit af húsaleigusamning með því að skrá sig inn á Signet.is
Íbúi eða sá forráðamaður sem undirritaði samninginn fyrir hönd íbúa getur sótt afrit af skjalinu.
Framboð til heimavistarráðs skólaárið 2026-2027
Hefur þú það sem til þarf?
Það er komið að því. Nú er opið fyrir tilnefningar í heimavistarráð. Ef þú hefur brennandi áhuga á velferð allra lifandi sálna innan veggja þessarar blessuðu heimavistar þá er ráðið staður fyrir þig.
Kosningarnar verða svo auglýstar síðar.
Hvernig ber ég mig að?
-Fyrsta skref er að finna kjörkassann í afgreiðslu
-Ritaðu nafn þitt á miða ásamt herbergisnúmeri
-Bombaðu miðanum í kjörkassann
-Voila, þú ert kominn í pottinn
Gangafundir fyrir alla íbúa á þriðjudaginn 8. september
Gangafundir fyrir alla íbúa á Heimavist MA og VMA
Næsta  þriðjudag, 8. september ætlar starfsfólk heimavistar og fulltrúar sem sátu í heimavistarráði síðasta skólaár að hitta íbúa og spjalla og eiga góða stund saman. Kaka í boði fyrir íbúa.
Það er skyldumæting og íbúar sem ekki sjá sér fært að mæta á tilgreindum tíma miðað við búsetu þurfa að láta starfsmann vita. Þeir íbúar fá úthlutað öðrum tíma.
Allir gangafundir verða í matsal Heimavistarinnar.
Allir nýjir íbúar sem hafa ekki verið áður og búa á 1.-2. hæð nýju vistar kl. 16:00 í matsal Heimavistarinnar.
Allir nýjir íbúar sem hafa ekki verið áður og búa á 3-5. hæð nýju vistar og allir nýjir íbúar sem hafa ekki verið áður og búa á gömlu vist kl. 16:30 í matsal Heimavistarinnar.
Allir eldri íbúar, sem hafa búið hér áður og búa á nýju vist og gömlu vist kl. 17:00 í matsal Heimavistarinnar.
Hlökkum til að funda með ykkur.
Skráningar í mötuneyti - opið fyrir skráningar
Unnið er að því að innleiða nýtt kerfi til að sinna skráningu og greiðslu í mötuneytinu.
Nú er hægt að skrá sig í annaráskrift með því að ýta á hlekkinn hér að neðan. Bráðlega mun nýtt app líta dagsins ljós og verður notað til þess að skrá sig inn í mat, þangað til er nóg að segja nafnið sitt á kassanum hvort sem er í MA eða VMA.
Eins og sakir standa er einungis hægt að skrá sig hér í annaráskrift (fyrir nemendur MA og VMA) og íbúar heimavistar geta skráð sig í sínar áskriftir.
Ef kaupa á 10 skipta kort eða stakar máltíðir má ganga frá slíkum kaupum í mötuneytum skólanna.
Ferlið krefst innskráningar með rafrænum skilríkjum, forráðamenn geta skráð sig inn og gengið frá kaupum með greiðslukorti fyrir ólögráða nemendur og nemendur geta sjálfir skráð sig inn og í kjölfarið er hægt að greiða með greiðslukorti, ekki er gerð krafa um að nemendur greiði með sínu eigin korti.
Skráning og greiðsla hér: https://port-id.is/
Húsaleigusamningar
Kæru íbúar og forráðafólk. Unnið er að því að senda út húsaleigusamninga til rafrænnar undirritunar og mega verðandi íbúar búast við að fá tölvupóst fyrir helgi með undirritunarbeiðni. Mikilvægt er að lesa vel yfir samninginn með sínu ungmenni og skrifa undir, bæði forráðamaður og íbúi, ef íbúi er undir 18 ára aldri. Í samning er farið yfir reglur og nytsamlega hluti tengda búsetu hér á Heimavistinni. Á forsíðu samnings kemur fram herbergjanúmer og stærð herbergis. Ekki er hægt að gefa upp nafn herbergisfélaga en ef gagnkvæmar óskir hafa borist um herbergisfélaga strax í umsókn þá má reikna með þeirri uppröðun.
Móttaka á Heimavistinni fyrir íbúa
Móttaka nýnema og nýrra íbúa sem eru skráðir í VMA verður sunnudaginn 16. ágúst kl. 12-18. VMA íbúar sem hafa verið áður geta komið á sunnudegi eða mánudegi.
Móttaka nýnema og nýrra íbúa sem eru skráðir í MA verður þriðjudaginn 18. ágúst kl. 10-18. MA íbúar sem hafa verið áður geta komið á þriðjudegi eða miðvikudegi.
Vinsamlegast virðið þessar tímasetningar.
Umsóknir fyrir skólaárið 2026-2027
Nú hafa allir umsækjendur um heimavist hjá Heimavist MA og VMA fengið svar. Umsóknir um heimavist voru gríðarlega margar í ár, langt umfram það pláss sem heimavistin hefur að bjóða og því miður þarf því að hafna mörgum umsóknum.
Tryggingagjald fyrir skólaár 2025-2026
Til hamingju brautskráningarnemendur Menntaskólans á Akureyri
Þann 17. júní, fór fram brautskráning frá Menntaskólanum á Akureyri.
Starfsfólk Heimavistar MA og VMA óskar brautskráningarnemendum Mennntaskólans á Akureyri innilega til hamingju með áfangann!
Opnað fyrir seinar umsóknir sem fara sjálfkrafa á biðlista
Allar umsóknir sem berast eftir 10. júní, teljast síðbúnar umsóknir og fara sjálfkrafa á biðlista.
Misstir þú af umsóknarfrestinum um Heimavist skólaárið 2026-2027?
Til hamingju með útskriftina brautskráningarnemendur VMA!
Starfsfólk Heimavistar MA og VMA óskar brautskráningarnemendum Verkmennntaskólans á Akureyri innilega til hamingju með áfangann!
Tilkynning frá þvottahúsinu
Kæru íbúar!
Vinsamlegast munið að skila bæði þvottaneti og þvottalykli í móttökuna.
Munið eftir að tæma þvottahólfið ykkar áður en farið er heim í sumarfrí.
Brottför af heimavist - skil á herbergi
Kæru íbúar !
Nú eru einhverjir íbúar þegar farnir að skila af sér herbergjum og halda út í vorið. Við minnum alla á að þrífa herbergin samviskusamlega og skila þeim eins og þeir tóku við þeim við komuna á stóra heimilið.
Varðandi lokun í vor þá er það dagsetning á húsaleigusamning sem segir til um lokadagsetningu hjá viðkomandi íbúa. 23. maí er síðasti leigudagur VMA íbúa. 29. maí er síðasti leigudagur MA íbúa.
Áður en þið farið heim, vinsamlegast:
Nálgist þrifablað / gátlista í afgreiðslu vegna herbergisþrifa.
Sækið vagn með ræstivörum.
Skilið lykli/korti af herbergi.
Skilið þrifablaði / gátlista útfylltum til starfsmanns.
Skilið þvottahúslykli og neti í afgreiðsluna
Óhreinar hlífðardýnur eiga að fara í merkta körfu.
Brúsar með þrifaefnum og fægiskófla og kústur (þrifið og hreint) niður í móttöku.
Hafið alltaf samband við starfsmann við brottför.
Gangi ykkur vel í prófum/námsmatsverkefnum
Reglur á próftíma taka gildi 8. maí
Næðistími á Heimavistinni hefst 8. maí
- Á próftíma á að vera næði allan sólarhringinn.
- Ekki er heimilt að hafa hjá sér gesti nema með sérstöku leyfi starfsmanns.
- Ekki eru veitt leyfi fyrir næturgestum meðan á próftíma stendur.
- Tónlist og sjónvörp á herbergjum og á setustofu mega alls ekki valda ónæði.
- Seta í anddyri og á göngum skal takmörkuð
Hafið samband við starfsmann í vaktsíma 899-1602 ef þið verðið fyrir ónæði.
Gangi ykkur vel i prófum og verkefnum.
Sýnum öll tillitssemi
Búið er að opna fyrir umsóknir um Heimavist skólaárið 2026-2027
Búið er að opna fyrir umsóknir um Heimavist skólaárið 2026-2027.
Við viljum benda á að bæði nýjir og núverandi íbúar á Heimavistinni þurfa að sækja um á heimavist fyrir næsta skólaár.
Sótt er um á forsíðu heimasíðunnar heimavist.is
Umsóknir fyrir næsta skólaár 2026-2027
Við viljum benda á að bæði nýjir og núverandi íbúar á Heimavistinni þurfa að sækja um á heimavist fyrir næsta skólaár.
Stefnt er að því að opna fyrir umsóknir í lok apríl. Auglýst verður hér á heimasíðunni og á fb síðu þegar opnað verður fyrir umsóknir.