Nýr listi - hagnýtar upplýsingar fyrir íbúa

Þegar íbúar koma á heimavistina þurfa þeir að hafa með sér:

Handspritt til að hafa á herbergi
Handsápu
Sæng og kodda
Sængurver, koddaver og lök
Handklæði
Rúmteppi ef vill
Körfu eða annað hentugt undir óhreinan þvott
Herðatré
Leirtau, hnífapör og glös/könnur eru ekki til staðar á herbergjum
Hlífðarlök fyrir rúmdýnur eru til staðar og hægt að fá til skiptanna í anddyri. Íbúar þurfa síðan sjálfir að hafa sitt eigið lak 
Íbúar fá sérmerkt þvottanet fyrir tuskur og svampa
Íbúar fá þvottaefni til að þrífa herbergi og baðherbergi þar sem það á við
Ryksugur og moppur eru til staðar á hverri hæð fyrir sig og þurfa íbúar að sjá um að spritta fyrir og eftir notkun
Sótthreinsispritt verður á hverri hæð í skolunum
Íbúar geta endurraðað húsgögnum á herbergjum en verða að skilja við þau eins og þau komu að þeim í upphafi. Mikilvægt er að passa upp á að skemma ekki gólfefni og húsgögn við flutningana
Íbúar mega aðeins hengja upp myndir eða annað á veggi með "kennaratyggjói" til að koma í veg fyrir að málningin skemmist
Íbúar á nýju vist hafa aðgang á herbergjum að örbylgjuofni og litlum ísskáp. Þeir íbúar sem eru á gömlu vist hafa ekki aðgang að ísskáp á herbergjum, en sumir koma með lítin kæliskáp með sér
Íbúar geta fengið að geyma töskur á svokölluðu töskulofti. Þá er aðstaða í kjallara til að geyma skauta, skíði, skíðaklossa o.s.frv.