Afsökunarbeiðni rútufyrirtækis

Afsökunarbeiðni rútufyrirtækis Óskar Stefánsson framkvæmdastjóri Bíla og fólks ehf. hefur í dag sent frá sér eftirfarandi tilkynningu vegna fréttar, sem

Afsökunarbeiðni rútufyrirtækis

Óskar Stefánsson framkvæmdastjóri Bíla og fólks ehf. hefur í dag sent frá sér eftirfarandi tilkynningu vegna fréttar, sem beindi grun að nemendum MA og VMA fyrir nokkru:

"Vegna fréttatilkynningar sem send var út frá fyrirtækinu Bílum og fólki ehf. mánudaginn 15. nóvember s.l. um að einhverjir farþegar hefðu gert þarfir sýnar á gólf bifreiðarinnar meðan rútan var í áætlunarferð frá Reykjavík til Akureyrar, óskar fyrirtækið að eftirfarandi verði komið á framfæri.

Vegna orðalags tilkynningarinnar um að farþegunum hafi verið hleypt út við heimavist Menntaskólans á Akureyri þá hafa bæði fréttamenn og aðrir ályktað sem svo að hér hafi annað hvort menntaskóla- eða verkmenntaskólakrakkar verið hér að verki.

Samkvæmt áræðanlegum upplýsingum og eftir rannsókn fyrirtækisins þá eiga nemendur í hvorugum þessa skóla nokkra sök á þessum verknaði og höfðu enga vitneskju um hann fyrr en að fréttatilkynningin kom í fréttum dagblaða og víðar.

Fyrirtækið biður nemendurna sem og aðra farþega afsökunar á því ónæði sem fyrirtækið hefur valdið þeim með fréttatilkynningunni og vonar að góð og farsæl viðskifti megi haldast áfram óbreytt hér eftir sem hingað til.

Virðingarfyllst, fh. Bíla og fólks ehf.
Óskar Stefánsson."


Svæði

Heimavist ma og vma

v/ Eyrarlandsveg 28
IS 600 Akureyri
heimavist@heimavist.is 

Helstu símanúmer

  • Vaktsími Heimavistar: 899 1602
  • Afgreiðsla: 455 1602
  • Þjónustustjóri: 455 1607 / 899 1607
  • Heimavistarstjóri: 455 1605
  • Viðtalssími hjúkrunarfræðings: 455 1611
  • Mötuneytið: 455 1604
  • Þvottahús: 455 1606
  • Neyðarlínan: 112