Jólaföndur Heimavistarráðs

Heimavistarráð stendur fyrir jólaföndri á setustofunni þriðjudagskvöldið 29. nóvember kl. 20. Hægt verður að skreyta piparkökur og útbúa ýmiskonar föndur til skreytinga. Allt efni á staðnum og því þurfa íbúar einungis að mæta í jólaskapi

Heimavistin lokuð um jól og áramót.

Heimavistinni verður lokað miðvikudaginn 21. desember kl. 12. Opnum aftur eftir áramót miðvikudaginn 4 . janúar kl. 12.

Uppsagnir á húsaleigusamningum fyrir þá íbúa sem hætta námi um áramót

Störf fyrir íbúa

Heimavistin auglýsir eftir íbúum til að aðstoða við þrif o.fl. (ryksuga, fylla á lagera o.s.frv.) nokkra tíma á viku eftir skóla (1-2 klst. í senn). Nánari upplýsingar veitir Rósa Margrét - rosa@heimavist.is

Grunnskólanemendur í heimsókn

Það var líf og fjör á heimavistinni í dag þegar við fengum um tvö hundruð grunnskólanemendur í heimsókn en hún er hluti af kynningum framhaldsskólana MA og VMA. Nemendur komu úr grunnskólum nágrannasveitafélaga: Hrafnagilsskóla, Dalvíkurskóla, Þelamekurskóla, Grenivíkurskóla, Grunnskólanum á Þórshöfn, Valsársskóla, Reykjahlíð, Þingeyjarskóla, Öxarfjarðarskóla, Húnavallaskóla og Grunnskólanum í Hrísey. Hægt er að sjá myndir á  facebook síðu heimavistarinnar.

Opið fyrir umsóknir vorið 2023

Höfum opnað fyrir umsóknir um heimavist fyrir vormisseri 2023. Sótt er um á heimasíðunni www.heimavist.is og í kjölfarið verður haft samband við umsækjendur. Bendum á að þeir sem eru þegar íbúar hjá okkur þurfa ekki að sækja um.

Heimavistarráð skólaárið 2022-2023

Nýtt heimavistarráð fyrir skólaárið 2022-2023 hefur verið skipað og er byrjað að funda. Fulltrúar í heimavistarráði þetta skólaár eru: Mikael Jens Halldórsson formaður heimavistarráðs Jóhannes Þór Hjörleifsson varaformaður Hlynur Fannar Stefánsson ritari Aðalheiður Ingvarsdóttir Enok Atli Reykdal Óli Jóhannes Gunnþórsson Þórný Harpa Rósinkranz Heimisdóttir  Starfsfólk Heimavistar óskar nýjum fulltrúum í heimavistráði til hamingju og góðs gengis og samstarfs í vetur.

Beiðni um næturgest

Minnum á næðistímann frá kl 23

Popp-rokk hljómsveit í stjörnuleit!