Hugmyndasamkeppni um merki Lundar

Hugmyndasamkeppni um merki Lundar Efnt er til samkeppni um merki (lógó) fyrir Lund sjálfseignarstofnun sem á og rekur Heimavist MA og VMA. Öllum nemendum

Hugmyndasamkeppni um merki Lundar

Efnt er til samkeppni um merki (lógó) fyrir Lund sjálfseignarstofnun sem á og rekur Heimavist MA og VMA.  Öllum nemendum í MA og VMA er frjálst að taka þátt í samkeppninni og er frestur til að skila inn tillögum til 24. mars  nk.

Merkið þarf að henta fyrir ýmiskonar kynningarefni (s.s bréfsefni, umslög og auglýsingar).  Æskilegt er að merkið sé einfalt í prentun og í einum lit.

Dómnefndin sem skipuð er skólameisturum MA og VMA, heimavistarstjóra, fulltrúa heimavistarráðs og fulltrúa Lundar, velur úr innsendum tillögum.  Athugið að Lundur ses áskilur sér rétt til að nýta ekki vinningstillöguna.

Veitt verða peningaverðlaun að upphæð 25.000 krónur fyrir bestu tillöguna.  Úrslit verða kynnt á sumardaginn fyrsta, 19. apríl n.k. á opnu húsi heimavistar, en þar verður jafnframt hægt að skoða þær tillögur sem bárust.

Tillögum að merkinu/lógóinu skal skila til Heimavistar MA og VMA, Eyrarlandsvegi 28, 600 Akureyri á tölvutæku formi í umslagi merktu með dulnefni.  Í  umslaginu skal vera lokað umslag með nafni höfundar.



 

 


Svæði

Heimavist ma og vma

v/ Eyrarlandsveg 28
IS 600 Akureyri
heimavist@heimavist.is 

Helstu símanúmer

  • Vaktsími Heimavistar: 899 1602
  • Afgreiðsla: 455 1602
  • Þjónustustjóri: 455 1607 / 899 1607
  • Heimavistarstjóri: 455 1605
  • Viðtalssími hjúkrunarfræðings: 455 1611
  • Mötuneytið: 455 1604
  • Þvottahús: 455 1606
  • Neyðarlínan: 112