Heimavistin tekur þátt í framhaldsskólakynningu í Laugardalshöll

Heimavist MA og VMA ætlar að taka þátt í Framhaldsskólakynningu dagana 16. – 18. mars 2017 í Laugardalshöllinni. Þarna gefst einstakt tækifæri til að kynna sér fjölbreytt námsframboð framhaldsskóla landsins en starfsfólk og nemendur 26 skóla munu miðla upplýsingum og fróðleik um námið, félagslífið og framtíðarmöguleikana. 
Á sama tíma fer fram í Höllinni Íslandsmót iðn- og verkgreina. Allir velkomnir - enginn aðgangseyrir!