Námsmatsdagar og vetrarfrí 19. og 20. febrúar

Kæru íbúar! Áður en þið farið heim vinsamlegast munið að: - Hafa herbergin snyrtileg, þá verður svo gaman að koma aftur. - Fara með allt rusl af herbergjum út í gám. - Slökkva á rafmagnstækjum (nema ísskáp) og ljósum. - Tæma ísskáp og örbylgjuofn. - Loka gluggum. - Stilla ofna á 3. - Skrá brottför í heimferðaskráningu á heimasíðunni. Muna að kíkja í þvottahúsið og tæma þvottahólfið.

Starf í boði fyrir íbúa

Heimavistin auglýsir eftir íbúum til að aðstoða við þrif o.fl. (ryksuga, fylla á lagera o.s.frv.) nokkra tíma á viku eftir skóla (1-2 klst. í senn). Nánari upplýsingar veitir Rósa Margrét - rosa@heimavist.is Óskum eftir samviskusömum og duglegum íbúum til að aðstoða starfsfólk okkar við að halda Heimavistinni hreinni og snyrtilegri. Starfið felst í því að ryksuga ganga og önnur létt þrif.

Ársfundur Lundar - Heimavistar MA og VMA

Ársfundur Lundar 2025 verður fimmtudaginn 5. febrúar n.k. kl. 12 í setustofu heimavistar. Dagskrá ársfundar: 1. Ársreikningur Lundar skólaárið 2024-2025 til kynningar. 2. Skýrsla stjórnar um starfsemi Lundar skólaárið 2024-2025. 3. Önnur mál. Ársfundur Lundar er opinn þeim sem aðild eiga að Heimavist MA og VMA, s.s. íbúum Lundar, foreldrum og forráðamönnum íbúanna, kennurum og starfsmönnum framhaldsskólana á Akureyri auk þeirra starfsmanna sem starfa í húsakynnum Lundar.

Reikningur fyrir húsaleigu og þvottagjaldi

Kæru íbúar og forráðamenn. Vinsamlegast athugið að núna kemur reikningur fyrir þvottahúsgjaldinu mánaðarlega. Það verður keyrt út með húsaleigu um hver mánaðarmót framvegis og er því dreift jafnt á mánuðina, yfir önnina. Síðast kom einn reikningur fyrir alla önnina. Ekki er um neina hækkun að ræða, bara breytt fyrirkomulag á innheimtu.

Heimavistin er lokuð yfir hátíðarnar

Athugið að Heimavistin lokar kl: 12:00 á hádegi laugardaginn 20. desember og verður opnuð á nýju ári sunnudaginn 4. janúar kl: 12:00.

Brautskráning frá Verkmenntaskólanum á Akureyri í dag

Starfsfólk Heimavistar óskar útskriftarnemendum Verkmenntaskólans á Akureyri innilega til hamingju með daginn.

Heim um jólin

Athugið að Heimavistin lokar kl: 12:00 á hádegi laugardaginn 20. desember og verður opnuð á nýju ári sunnudaginn 4. janúar kl: 12:00. Kæru íbúar Áður en þið farið í jólafrí vinsamlegast munið að: Hafa herbergin snyrtileg, þá verður svo gaman að koma aftur Fara með ALLT rusl af herbergjum út í gám Slökkva á rafmagnstækjum og taka úr sambandi – allt nema ísskápinn en athuga hvort þar séu matvæli sem geta skemmst Loka gluggum Stilla ofna á 3 Skrá brottför í móttökunni Með jólakveðju Starfsfólk Heimavistar MA og VMA

Reglur á próftíma taka gildi 5. desember

Næðistími á Heimavistinni hefst 5. desember. - Á próftíma á að vera næði allan sólarhringinn. - Ekki er heimilt að hafa hjá sér gesti nema með sérstöku leyfi starfsmanns. - Ekki eru veitt leyfi fyrir næturgestum meðan á próftíma stendur. - Tónlist og sjónvörp á herbergjum og á setustofu mega alls ekki valda ónæði. - Seta í anddyri og á göngum skal takmörkuð Hafið samband við starfsmann í vaktsíma 899-1602 ef þið verðið fyrir ónæði. Gangi ykkur vel i prófum og verkefnum. Sýnum öll tillitssemi Starfsfólk Heimavistar MA og VMA

Jólahlaðborð Heimavistarráðs miðvikudaginn 3. desember

Jólastemmning á setustofunni - fimmtudag kl. 20

Heimavistarráð stendur fyrir jólakvöldi á setustofunni á fimmtudagskvöldið, 27. nóvember kl. 20. Boðið verður upp á að skreyta piparkökur🎄