Til hamingju brautskráningarnemendur Menntaskólans á Akureyri

Þann 17. júní, fór fram brautskráning frá Menntaskólanum á Akureyri. Starfsfólk Heimavistar MA og VMA óskar brautskráningarnemendum Mennntaskólans á Akureyri innilega til hamingju með áfangann!

Opnað fyrir seinar umsóknir sem fara sjálfkrafa á biðlista

Allar umsóknir sem berast eftir 10. júní, teljast síðbúnar umsóknir og fara sjálfkrafa á biðlista. Misstir þú af umsóknarfrestinum um Heimavist skólaárið 2026-2027?

Til hamingju með útskriftina brautskráningarnemendur VMA!

Starfsfólk Heimavistar MA og VMA óskar brautskráningarnemendum Verkmennntaskólans á Akureyri innilega til hamingju með áfangann! Við brautskráninguna í Hofi þann 29. maí flutti Hulda Þórey Halldórsdóttir ávarp fyrir hönd brautskráningarnema. Hulda Þórey er nýstúdent af íþrótta- og lýðheilsubraut og formaður nemendafélagsins Þórdunu síðustu tvö skólaár. Hún hefur verið búsett á Heimavistinni öll námsárin og þökkum við henni sem og öllum hinum brautskáðu samfylgdina á árunum.

Tilkynning frá þvottahúsinu

Kæru íbúar! Vinsamlegast munið að skila bæði þvottaneti og þvottalykli í móttökuna. Munið eftir að tæma þvottahólfið ykkar áður en farið er heim í sumarfrí. Athugið með óskilamuni í hillu frammi í þvottahúsi.

Brottför af heimavist - skil á herbergi

Kæru íbúar ! Nú eru einhverjir íbúar þegar farnir að skila af sér herbergjum og halda út í vorið. Við minnum alla á að þrífa herbergin samviskusamlega og skila þeim eins og þeir tóku við þeim við komuna á stóra heimilið. Varðandi lokun í vor þá er það dagsetning á húsaleigusamning sem segir til um lokadagsetningu hjá viðkomandi íbúa. 23. maí er síðasti leigudagur VMA íbúa. 29. maí er síðasti leigudagur MA íbúa. Áður en þið farið heim, vinsamlegast: Nálgist þrifablað / gátlista í afgreiðslu vegna herbergisþrifa. Sækið vagn með ræstivörum. Skilið lykli/korti af herbergi. Skilið þrifablaði / gátlista útfylltum til starfsmanns. Skilið þvottahúslykli og neti í afgreiðsluna Óhreinar hlífðardýnur eiga að fara í merkta körfu. Brúsar með þrifaefnum og fægiskófla og kústur (þrifið og hreint) niður í móttöku. Hafið alltaf samband við starfsmann við brottför. Gangi ykkur vel í prófum/námsmatsverkefnum Starfsfólk Heimavistar MA og VMA

Reglur á próftíma taka gildi 8. maí

Næðistími á Heimavistinni hefst 8. maí - Á próftíma á að vera næði allan sólarhringinn. - Ekki er heimilt að hafa hjá sér gesti nema með sérstöku leyfi starfsmanns. - Ekki eru veitt leyfi fyrir næturgestum meðan á próftíma stendur. - Tónlist og sjónvörp á herbergjum og á setustofu mega alls ekki valda ónæði. - Seta í anddyri og á göngum skal takmörkuð Hafið samband við starfsmann í vaktsíma 899-1602 ef þið verðið fyrir ónæði. Gangi ykkur vel i prófum og verkefnum. Sýnum öll tillitssemi Starfsfólk Heimavistar MA og VMA

Búið er að opna fyrir umsóknir um Heimavist skólaárið 2026-2027

Búið er að opna fyrir umsóknir um Heimavist skólaárið 2026-2027. Við viljum benda á að bæði nýjir og núverandi íbúar á Heimavistinni þurfa að sækja um á heimavist fyrir næsta skólaár. Sótt er um á forsíðu heimasíðunnar heimavist.is Opið verður fyrir umsóknir til og með 10. júní. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfrestur rennur út eru settar á biðlista.

Umsóknir fyrir næsta skólaár 2026-2027

Við viljum benda á að bæði nýjir og núverandi íbúar á Heimavistinni þurfa að sækja um á heimavist fyrir næsta skólaár. Stefnt er að því að opna fyrir umsóknir í lok apríl. Auglýst verður hér á heimasíðunni og á fb síðu þegar opnað verður fyrir umsóknir. Opið verður fyrir umsóknir til 10. júní. 

Páskalokun kl. 12:00 laugardaginn 28. mars

Senn líður að páskafríi íbúa en báðir framhaldsskólarnir MA og VMA eru með síðasta kennsludag fyrir páska föstudaginn 27. mars. Heimavistin lokar kl. 12 á hádegi laugardaginn 28. mars. Opnum aftur eftir páskafrí mánudaginn 6. apríl, annan í páskum kl. 12. Áður en þið farið í páskafrí munið að: Hafa herbergin snyrtileg, þá verður svo gaman að koma aftur. Fara með ALLT rusl af herbergjum út í gám. Slökkva á rafmagnstækjum og taka úr sambandi – allt nema ísskápinn, en athuga hvort þar séu matvæli sem geta skemmst. Loka gluggum. Stilla ofna á 3. Með Páskakveðju, Starfsfólk Heimavistar MA og VMA.

Páskabingó á miðvikudaginn 25. mars fyrir íbúa heimavistar

Páskabingó miðvikudaginn 25. mars fyrir íbúa heimavistar. Á setustofunni kl. 20:00. Veglegir páskavinningar í boði.