Íbúi heimavistar gullverðlaunahafi á Íslandsmeistaramóti

Þorgbergur Guðmundsson íbúi á heimavist og nemandi í VMA varð stigameistari í réttstöðulyfu í 120+ kg flokki karla á Íslandsmeistaramóti sem haldið var í Smáranum um síðustu helgi. Í karla­flokki var keppn­in tví­sýn fram­an af, eða þar til Þor­berg­ur gerði sér lítið fyr­ir og togaði upp 340 kg í síðustu lyftu móts­ins í +120 kg flokki ung­linga og fékk 190,026 stig.

Starfsfólk Heimavistar MA og VMA óskar Þorbergi til hamingju með árangurinn.