Rýmiæfing - brunaæfing á næstu dögum

Á næstu dögum verður rýmiæfing á heimavistinni í samtarfi við starfsmenn frá Eldvarnaeftirliti Slökkviliðs Akureyrar. Við höldum rýmiæfingu reglulega til að vera eins vel undirbúin og hægt er ef til þess kemur að rýma þurfi húsnæðið vegna raunverulegs bruna. Það er gerð krafa um að allir íbúar, gestir, starfsmenn og aðrir sem í húsnæðinu eru á tíma æfingar rými húsnæðið líkt og um raunverulegan bruna væri að ræða.

Heimavistin er lokuð yfir jól og áramót

Heimavistin er lokuð yfir jól og áramót. Við lokum húsnæðinu kl. 12:00 á hádegi, laugardaginn 19. desember og opnum aftur eftir jólafrí kl. 12:00 þann 5. janúar 2027. Kennsla í báðum skólum hefst 6. janúar 2027.

Búið er að opna fyrir umsóknir um Heimavist á vorönn 2027

Minnum á að hægt að sækja um heimavist fyrir vorönn 2027. Sótt er um á heimasíðunni www.heimavist.is og í kjölfarið verður haft samband við umsækjendur. Bendum á að þeir sem eru þegar íbúar hjá okkur þurfa ekki að sækja um. v Vinsamlega athugið að sameiginlegt umsóknartímabil framhaldsskóla sem bjóða upp á innritun fyrir nám á vorönn 2027 er dagana 1.-30. nóvember. Eftir það munum við vinna úr umsóknum um Heimavist.

Nokkur atriði sem mikilvægt er að hafa í huga þegar farið er heim í haustfrí

Kæru íbúar! Áður en þið farið heim í vetrarfrí vinsamlegast munið að: - Hafa herbergin snyrtileg, þá verður svo gaman að koma aftur. - Fara með allt rusl af herbergjum út í gám. - Slökkva á rafmagnstækjum (nema ísskáp) og ljósum. - Tæma ísskáp og örbylgjuofn. - Loka gluggum. - Stilla ofna á 3. - Skrá brottför í heimferðaskráningu á heimasíðunni. Muna að kíkja í þvottahúsið og tæma þvottahólfið. Herbergjaskoðanir verða áfram á sömu dögum og vanalega. Kær kveðja, Starfsfólk Heimavistar MA og VMA

Uppsagnir á húsaleigusamningum fyrir þá íbúa sem hætta námi um áramót

Athygli er vakin á að uppsögn á húsaleigusamningi við annarskil hjá bæði MA og VMA íbúum er 30. nóvember n.k. Gildir aðeins fyrir þá íbúa sem hætta námi um áramót. Skila þarf skriflegri uppsögn fyrir þann tíma til að komast hjá því að greiða húsaleigu eftir annarskil. Best er að senda tölvupóst. Þeir íbúar sem hætta námi um annarskil vegna ófullnægjandi námsframvindu þurfa að senda skriflega uppsögn í tölvupósti um leið og niðurstaða annarprófa liggur fyrir. Athugið að við þessar aðstæður er uppsagnarfresturinn einn mánuður eftir annarskil. Uppsagnir skal senda á netfangið rosa@heimavist.is

Nýtt heimavistarráð skólaárið 2026 - 2027

Kosið var til Heimavistarráðs í síðustu viku, miðvikudaginn 30. september. Í heimavistarráði skólaárið 2026-2027 eru: Ari Ingvarsson (MA) Ágúst Helgi Franklínsson (VMA) Bæring Nói Dagsson (MA) Friðrik Árnason (MA) Jóhann Lars Palleq Sigvarðsson (VMA) Steingrímur Árni Jónsson (MA) Sædís Ósk Pálmadóttir (VMA)

Kosning til Heimavistarráðs í kvöld, miðvikudaginn 30. september

Kosning til Heimavistarráðs verður á miðvikudaginn næstkomandi, 30. september. Allir íbúar geta kosið einu sinni. Kosning fer fram í anddyri kl 19:30-21:00 á miðvikudagskvöld. Kjörkassinn verður í móttökunni og hver og einn íbúi getur aðeins kosið einu sinni. Hægt er að merkja við allt að sjö einstaklinga á seðilinn en athugið að ekki má merkja við fleiri en sjö. Fleiri krossar ógilda seðillinn.

Húsaleigusamningar

Framboð til heimavistarráðs skólaárið 2026-2027

Hefur þú það sem til þarf? Það er komið að því. Nú er opið fyrir tilnefningar í heimavistarráð. Ef þú hefur brennandi áhuga á velferð allra lifandi sálna innan veggja þessarar blessuðu heimavistar þá er ráðið staður fyrir þig. Kosningarnar verða svo auglýstar síðar. Hvernig ber ég mig að? -Fyrsta skref er að finna kjörkassann í afgreiðslu -Ritaðu nafn þitt á miða ásamt herbergisnúmeri -Bombaðu miðanum í kjörkassann -Voila, þú ert kominn í pottinn

Gangafundir fyrir alla íbúa á þriðjudaginn 8. september

Gangafundir fyrir alla íbúa á Heimavist MA og VMA Næsta  þriðjudag, 8. september ætlar starfsfólk heimavistar og fulltrúar sem sátu í heimavistarráði síðasta skólaár að hitta íbúa og spjalla og eiga góða stund saman. Kaka í boði fyrir íbúa. Það er skyldumæting og íbúar sem ekki sjá sér fært að mæta á tilgreindum tíma miðað við búsetu þurfa að láta starfsmann vita. Þeir íbúar fá úthlutað öðrum tíma. Allir gangafundir verða í matsal Heimavistarinnar. Allir nýjir íbúar sem hafa ekki verið áður og búa á 1.-2. hæð nýju vistar kl. 16:00 í matsal Heimavistarinnar. Allir nýjir íbúar sem hafa ekki verið áður og búa á 3-5. hæð nýju vistar og allir nýjir íbúar sem hafa ekki verið áður og búa á gömlu vist kl. 16:30 í matsal Heimavistarinnar. Allir eldri íbúar, sem hafa búið hér áður og búa á nýju vist og gömlu vist kl. 17:00 í matsal Heimavistarinnar. Hlökkum til að funda með ykkur. Starfsfólk Heimavistar MA og VMA.