Unnið úr umsóknum á heimavist fyrir komandi skólaár

Umsóknarfrestur um heimavist næsta skólaár var til 10. júní s.l. og hafa sjaldan fleiri umsóknir borist. Nú er verið að vinna úr umsóknum en hægt er að sjá þær vinnureglur sem hafðar eru til hliðsjónar við úthlutun á leigurými á heimavistinni hér á heimasíðunni.
Gert er ráð fyrir að hægt verði að senda umsækjendum bréf í lok vikunnar. Rétt er að vekja athygli á að staðfestingar- og tryggingargjald er alls kr. 45.000 sem greiða þarf í júlí. Verði seðilinn ekki greiddur á eindaga í júlí er gert ráð fyrir að viðkomandi hafi hætt við búsetu á vistinni og nemendur á biðlista verða teknir inn. Tekið verður inn af biðlista í byrjun ágúst.

.