Hagnýtar upplýsingar fyrir nýja íbúa á heimavist

Hér eru ýmsar hagnýtar upplýsingar fyrir nýja íbúa sem eru að flyta á heimavistina.

Þegar íbúar koma á heimavistina þurfa þeir að hafa með sér:

  • Handsápu til að hafa á herbergi
  • Sæng og kodda
  • Sængurver, koddaver og lök
  • Handklæði 
  • Rúmteppi ef vill
  • Körfu eða annað hentugt undir óhreinan þvott
  • Herðatré

Leirtau, hnífapör og glös/könnur eru  ekki til staðar á herbergjum.
Hlífðarlök eru til staðar og hægt að fá til skiptanna í anddyri. Athugið að hlífðarlak þarf að vera á rúmdýnu og svo lak frá íbúa.

Ath. stærðir rúma eru mismunandi eftir herbergjum, upplýsingar um stærð rúma má finna hér

Íbúar fá sérmerkt þvottanet með tuskum og svampi. Íbúar fá þvottaefni til að þrífa herbergi og baðherbergi þar sem það á við. Ryksugur og moppur eru til staðar á hverri hæð.

Íbúar geta endurraðað húsgögnum á herbergjum en verða að skilja við þau eins og þau komu að þeim í upphafi. 

Aðeins má hengja upp myndir eða annað á veggi með "kennaratyggjói" til að koma í veg fyrir að málningin skemmist.

Íbúar á nýju vist hafa aðgang á herbergjum að örbylgjuofni og litlum ísskáp. Þeir íbúar sem eru á gömlu vist hafa ekki aðgang að ísskáp og örbylgjuofni á herbergjum, en sumir koma með lítin kæliskáp eða örbylgjuofn  með sér.

Íbúar geta fengið að geyma töskur á svokölluðu töskulofti.  Þá er aðstaða í kjallara til að geyma skauta, skíði, skíðaklossa o.s.frv.

Minnum á að íbúar þurfa að sækja um mötuneytisþjónustu heimavistarinnar innan viku frá komu íbúa á heimavist.