Reglur Mötuneytis
- Mötuneyti MA og VMA er rekið af Lundi ses., rekstrarfélagi sem einnig rekur Heimavist MA og VMA.
- Framkvæmdastjóri Lundar ræður rekstrarstjóra mötuneytis að höfðu samráði við stjórn Lundar. Rekstrarstjóri annast daglega stjórn og rekstur mötuneytis undir yfirstjórn framkvæmdastjóra Lundar.
- Mötuneytið tekur að sér að sjá íbúum heimavistar fyrir fullnægjandi mötuneytisaðstöðu í samræmi við 2. gr. í þjónustusamningi milli stjórnar rekstrarfélagsins Lundar og menntamálaráðuneytisins sem undirritaður var 17. desember 2001.
- Íbúar heimavistar skuldbinda sig til að velja eina af fyrirfram skilgreindum áskriftarleiðum. Fyrir mötuneytisþjónustu greiðir leigjandi samkvæmt þeirri áskriftarleið sem valin er og gjaldskrá mötuneytis Lundar sem gildir þegar valið fer fram. Gjaldskráin er birt á vef Lundar. Valin áskriftarleið gildir fyrir eina önn. Þjónusta er veitt fimm (5) eða sjö (7) daga vikunnar, með því skilyrði að keyptar séu að minnsta kosti tvær (2) máltíðir á dag.
Eftirfarandi valkostir eru í boði:
- Fullt fæði; morgunverður, hádegisverður og kvöldverður.
- Morgunverður og hádegisverður.
- Morgunverður og kvöldverður.
- Hádegisverður og kvöldverður.
Síðdegiskaffi er í boði fyrir alla íbúa heimavistar.
- Mötuneytið er skólamötuneyti Menntaskólans á Akureyri og Verkmenntaskólans á Akureyri ásamt því að útvega máltíðir fyrir starfsmenn beggja skólanna.
- Íbúar og aðrir sem nýta sér þjónustu mötuneytis skulu ganga vel um mat, salarkynni og áhöld mötuneytis, ásamt því að sýna starfsfólki og öðrum gestum gagnkvæma virðingu og kurteisi.
- Skila skal ílátum og borðbúnaði í matsal að lokinni máltíð. Stranglega er bannað að fara með mat, matarílát eða borðbúnað út úr matsalnum nema til þeirra sem veikir eru, og skal það gert með leyfi starfsmanns.
- Óheimilt er að veita öðrum aðgang að eigin mataráskrift. Gestir sem nýta þjónustu mötuneytisins skulu greiða fyrir mat samkvæmt gjaldskrá.
- Íbúum og öðrum sem nýta sér þjónustu mötuneytis ber að koma á auglýstum tíma í mat.
- Íbúum sem stunda nám í VMA stendur til boða að borða hádegismat í matsal skólans.
- Íbúar skulu upplýsa starfsfólk um fæðuofnæmi eða óþol. Lundur áskilur sér rétt til að óska eftir læknisvottorði þegar óskað er eftir sérfæði vegna ofnæmis eða óþols.
- Við innkaup og útfærslu matseðils eru leiðbeiningar í Handbók fyrir skólamötuneyti sem Embætti landlæknis gaf út hafðar að leiðarljósi.
- Íbúar og aðrir sem nýta sér þjónustu mötuneytis skulu neyta matar í matsalnum. Íbúi sem skráður er í kvöldmáltíð getur óskað eftir brottnámsbakka ef íbúi kemst ekki í mat á auglýstum tíma vegna veikinda, vinnu eða íþrótta- eða tómstundaiðkunar. Skráningablað er aðgengilegt í anddyri heimavistar fyrir þá sem komast ekki í kvöldmat, en lokað er fyrir skráningu áður en kvöldmatur hefst.
- Óheimilt er að koma með utanaðkomandi mat og neyta hans í matsalnum.
- Nemendur sem ekki búa á heimavistinni skulu yfirgefa húsnæðið að máltíð lokinni.
Uppfært 12.08.26