Hvenær er umsóknum svarað?:
Öllum umsóknum er svarað eftir að skólarnir hafa sent okkur staðfestingu á skólavist (í júní). Svarbréf frá Heimavistinni kemur frá netfanginu heimavist@S5.is
Fékkstu úthlutað búsetu á heimavistinni?
Ef að þú færð úthlutað búsetu á heimavist þarf að staðfesta umsóknina með því að greiða kr. 50.000. Greiðsluseðill verður sendur í heimabanka eða í heimabanka forráðamanns fyrir þá umsækjendur sem eru ólögráða. Gjaldið er samansett af óendurkræfu staðfestingargjaldi kr. 10.000 og tryggingagjaldi kr. 40.000. Eindagi er 15. júlí og ef greiðsluseðill er ekki greiddur á eindaga er litið svo á að búseta á heimavist hafi verið afþökkuð.
Fékkstu úthlutað búsetu á heimavist en ætlar ekki að þiggja plássið?
Ef að greiðsluseðill fyrir staðfestingar- og tryggingagjaldi er ekki greiddur fyrir eindaga er litið svo á að þú afþakkir pláss á heimavistinni og næsta aðila á biðlista verður boðið plássið. Vinsamlegast tilkynnið í tölvupósti á netfangið heimavist@heimavist.is ef ekki stendur til að þiggja búsetu.
Fæ ég það herbergi sem ég óskaði eftir?
Nýnemar geta gert ráð fyrir því að fá tveggja manna herbergi úthlutað. Herbergjaúthlutun kemur í ljós þegar húsaleigusamningur er sendur til undirritunar í ágúst.
Húsaleigusamningur?
Húsaleigusamningar og önnur gögn verða send rafrænt viku fyrir upphaf skólaársins. Ætlast er til að íbúar og forráðamenn þeirra íbúa sem ekki eru lögráða yfirfari og staðfesti leigusamninginn með rafrænni undirritun áður en komið er á vistina. Því er mikilvægt að allir íbúar hafi rafræn skilríki.
Hvenær get ég flutt inn á vistina?
Móttaka nýnema og nýrra íbúa sem eru skráðir í VMA verður sunnudaginn 16. ágúst. VMA íbúar sem hafa verið áður geta komið á sunnudegi eða mánudegi.
Móttaka nýnema og nýrra íbúa sem eru skráðir í MA verður þriðjudaginn 18. ágúst. MA íbúar sem hafa verið áður geta komið á þriðjudegi eða miðvikudegi.
Ef komið er utan þessa tíma er ekki hægt að tryggja að hægt sé að afhenda þér herbergið, vinsamlegast hafið samband á heimavist@heimavist.is ef þessar tímasetningar henta ekki.
Fékkst þú synjun á búsetu?
Fjöldi umsókna um heimavist fyrir skólaárið 2025-2026 var langt umfram þann fjölda plássa sem við höfum á Heimavistinni. Ef þú fékkst synjun á búsetu en ert með staðfesta skólavist í MA eða í VMA fyrir komandi skólaár þá fer umsókn þín um heimavist sjálfkrafa á biðlista. Við getum ekki gefið upplýsingar um hvar á biðlista umsækjandi er staddur.
Afhverju er umsókn minni um heimavist synjað?
Athugið að ástæður fyrir því að ekki er hægt að verða við umsóknum geta m.a. verið þær að ekki er nægt rými í boði, umsækjandi hefur ekki sótt um skólavist, skólavist hefur verið hafnað eða að viðkomandi hefur áður gerst brotlegur við húsaleigusamning eða reglur Heimavistar MA og VMA.
Í ár er fjöldi umsókna um heimavist mikið fleiri en laus pláss og því ekki pláss fyrir alla sem sóttu um.