Nú eru einhverjir íbúar þegar farnir að skila af sér herbergjum og halda út í vorið. Við minnum alla á að þrífa herbergin samviskusamlega og skila þeim eins og þeir tóku við þeim við komuna á stóra heimilið.
Áður en þið farið heim, vinsamlegast:
- Nálgist þrifablað / gátlista í afgreiðslu vegna herbergisþrifa.
- Sækið vagn með ræstivörum.
- Skilið lykli/korti af herbergi.
- Skilið þrifablaði / gátlista útfylltum til starfsmanns.
- Skilið þvottahúslykli og neti í afgreiðsluna
- Óhreinar hlífðardýnur eiga að fara í merkta körfu.
- Brúsar með þrifaefnum og fægiskófla og kústur (þrifið og hreint) niður í móttöku.
- Hafið alltaf samband við starfsmann við brottför.
Gangi ykkur vel í prófum/námsmatsverkefnum
Starfsfólk Heimavistar MA og VMA