Gangafundir fyrir alla íbúa á þriðjudaginn 8. september

Gangafundir fyrir alla íbúa á Heimavist MA og VMA

Næsta þriðjudag, 8. september ætlar starfsfólk heimavistar og fulltrúar sem sátu í heimavistarráði síðasta skólaár að hitta íbúa og spjalla og eiga góða stund saman. Kaka í boði fyrir íbúa.

Það er skyldumæting og íbúar sem ekki sjá sér fært að mæta á tilgreindum tíma miðað við búsetu þurfa að láta starfsmann vita. Þeir íbúar fá úthlutað öðrum tíma.

Allir gangafundir verða í matsal Heimavistarinnar.

  • Allir nýjir íbúar sem hafa ekki verið áður og búa á 1.-2. hæð nýju vistar kl. 16:00 í matsal Heimavistarinnar.
  • Allir nýjir íbúar sem hafa ekki verið áður og búa á 3-5. hæð nýju vistar og allir nýjir íbúar sem hafa ekki verið áður og búa á gömlu vist kl. 16:30 í matsal Heimavistarinnar.
  • Allir eldri íbúar, sem hafa búið hér áður og búa á nýju vist og gömlu vist kl. 17:00 í matsal Heimavistarinnar.

 

Hlökkum til að funda með ykkur.

Starfsfólk Heimavistar MA og VMA.