Athugið að Heimavistin lokar kl: 12:00 á hádegi laugardaginn 20. desember og verður opnuð á nýju ári sunnudaginn 4. janúar kl: 12:00.
Kæru íbúar
Áður en þið farið í jólafrí vinsamlegast munið að:
- Hafa herbergin snyrtileg, þá verður svo gaman að koma aftur
- Fara með ALLT rusl af herbergjum út í gám
- Slökkva á rafmagnstækjum og taka úr sambandi – allt nema ísskápinn en athuga hvort þar séu matvæli sem geta skemmst
- Loka gluggum
- Stilla ofna á 3
- Láta starfsmann vita af brottför í móttökunni
Með jólakveðju
Starfsfólk Heimavistar MA og VMA