Unnið er að því að senda út húsaleigusamninga til rafrænnar undirritunar og mega verðandi íbúar búast við að fá tölvupóst fyrir helgi með undirritunarbeiðni. Mikilvægt er að lesa vel yfir samninginn með sínu ungmenni og skrifa undir, bæði forráðamaður og íbúi, ef íbúi er undir 18 ára aldri. Í samning er farið yfir reglur og nytsamlega hluti tengda búsetu hér á Heimavistinni. Á forsíðu samnings kemur fram herbergjanúmer og stærð herbergis. Ekki er hægt að gefa upp nafn herbergisfélaga en ef gagnkvæmar óskir hafa borist um herbergisfélaga strax í umsókn þá má reikna með þeirri uppröðun.
Á heimasíðunni okkar má nálgast ýmsar upplýsingar sem gott er að vita áður en komið er á staðinn, t.d. er listi yfir það sem þarf að hafa með sér, rúmstærðir o.fl. í flettilista hér að ofan sem heitir "fyrir íbúa".
Við bendum á að mikilvægt er að hlaða niður húsaleigusamningnum þegar búið er að undirrita hann og eiga hann tiltækan í tölvu á pdf formi. Þannig getið þið sótt um húsnæðisbætur. Ólögráða íbúar / forráðamenn íbúa sækja um hjá sínu sveitarfélagi, þar sem viðkomandi hefur lögheimili. Þeir íbúar sem hafa náð 18 ára aldri þurfa að sækja um húsnæðisbætur í gegnum HMS. Athugið að ef viðkomandi nær 18 ára aldri yfir skólaárið þarf að sækja um í afmælismánuði hjá HMS. Sjá nánar hér.
Starfsfólk heimavistar MA og VMA hlakkar mikið til að taka á móti ykkur öllum.