Jólahlaðborð Heimavistarráðs miðvikudaginn 2. desember

Jólahlaðborð Heimavistarráðs verður haldið miðvikudagskvöldið 2. desember. Borðhald hefst kl. 17 og lýkur kl. 19:30.  Öllum íbúum heimavistarinnar verður boðið upp á glæsilegan matseðil í skreyttum matsal. Íbúar eru hvattir til að mæta í snyrtilegum klæðnaði enda tilefnið hátíðlegt. Athugið að jólahlaðborð er fyrir alla íbúa, óháð því hvort viðkomandi íbúi sé skráður í kvöldmat eða ekki.

Endilega takið kvöldið frá og eigum saman notalega kvöldstund.

Matseðil má sjá hér.