Umsóknir fyrir skólaárið 2026-2027

Nú hafa allir umsækjendur um heimavist hjá Heimavist MA og VMA fengið svar. Umsóknir um heimavist voru gríðarlega margar í ár, langt umfram það pláss sem heimavistin hefur að bjóða og því miður þarf því að hafna mörgum umsóknum.

Við bendum á að allir sem eru með staðfesta skólavist í MA eða í VMA fara sjálfkrafa á biðlista eftir plássi. Allir sem sóttu um eftir að auglýstum umsóknarfresti lauk fara einnig beint á biðlista og fá synjað bréf.

Tekið verður inn af biðlista í lok júlí og byrjun ágúst ef pláss losnar, við biðjum ykkur um að senda okkur tölvupóst ef þið kjósið að vera ekki á biðlista eftir plássi á heimavist@heimavist.is

ATH. Mikilvægt er að láta vita ef að umsækjendur fengu síðbúið samþykki inn í skólana og vilja vera á biðlista.

Greiða þarf staðfestingar- og tryggingagjald í síðasta lagi á eindaga 15. júlí nk., sé krafa ekki greidd er litið svo á að viðkomandi hafni plássi. Við biðlum þó til þeirra sem ætla ekki að þiggja pláss að senda okkur einnig tölvupóst á heimavist@heimavist.is