Upplýsingar vegna endurgreiðslu á tryggingargjaldi við lok skólaársins 2024-2025

Leigjandi greiðir tryggingarfé að vori til Lundar sjálfseignarstofnunar. Við lok leigutímans og að lokinni úttekt á húsnæðinu og yfirferð herbergjaþrifa, endurgreiðist tryggingargjaldið svo framarlega sem engar skemmdir hafa orðið á húsum og búnaði, gerð hafa verið skil á leigugreiðslum og prentkostnaði ef einhver er og athugasemdir ekki gerðar við þrif. 

Tryggingarféð verður endurgreitt í júní.