Mötuneyti
Mötuneytið er á neðstu hæð gömlu vistar og sömuleiðis þvottahúsið. Matsalur tekur um það bil 180 manns í sæti. Í mötuneytinu er augnskanni sem veit hvort íbúar séu skráðir í tiltekna máltíð. Á boðstólum er venjulegur heimilismatur, fjölbreytt fæði og yfirleitt hollt.
Fæðisflokkar sem í boði eru:
Ath! Þeir sem eru í 5 daga fæði geta sleppt því að fara í mat á föstudagskvöldi og farið í staðinn í mat á sunnudagskvöldi ef þeir skrá sig á ákveðið blað í matsal í hádegi á föstudegi.
Síðdegiskaffi er í boði fyrir alla íbúa vistarinnar.
Þvottahús
Í upphafi skólaárs fá íbúar lykil að skáp sem þeir skila í lok vetrar og fá endurgreitt 3000 kr. Á fyrsta ári fá íbúar sokka- og nærfatapoka sem er þeirra eign. Allir fá þvottanúmer sem þeir halda öll árin sín á vist. Allan fatnað skal merkja með þessu þvottanúmeri. Merkja skal þvottinn vel með fatatússi sem m.a.eru tiltækir í þvottahúsi.
Flokka skal þvottinn í ákveðin hólf til að auðvelda starfsmönnum í þvottahúsinu verkin. Ef um er að ræða dýran fatnað er hægt að fara með hann til starfsfólks þvottahúss og fá tryggingu fyrir því að fatnaðurinn fari á réttan stað. Athugið að allur þvottur er þurrkaður í þurrkara nema að sérstaklega sé beðið um annað. Engin ábygð er tekin á þvotti sem ekki er beðið um að fái sérstaka meðferð.