Umsókn fyrir gest í næturgistingu

Reglur um næturgistingu
  1. Sækja þarf um leyfi fyrir næturgest á heimavist.is.
  2. Sækja þarf um í síðasta lagi á miðvikudegi, sé gestur væntanlegur um helgi, annars skal miða við með tveggja sólarhringa fyrirvara.
  3. Herbergisfélagi þarf að gefa leyfi sitt fyrir næturgesti með því að senda tölvupóst á rosa@heimavist.is
  4. Ef gestgjafi, herbergisfélagi eða gestur eru yngri en 18 ára þarf að fá samþykki forráðamanna.
  5. Forráðamenn senda samþykki í tölvupósti á þjónustustjóra rosa@heimavist.is fyrir fimmtud.kvöld ef gisting er um helgi.
  6. Næturgestir eru alfarið á ábyrgð gestgjafa sinna og verða því að fylgja reglum Heimavistar s.s. um áfengi, næði og aðra umgengni eins og íbúar. Ef þeir brjóta reglurnar er þeim umsvifalaust vikið burt.
  7. Ekki er heimilt að hafa næturgesti á prófatíma.
  8. Ekki er gefið leyfi fyrir gistingu ef viðkomandi býr á Akureyri.
  9. Þjónustustjóri hefur rétt til að meta aðstæður hverju sinni hvort leyfi fæst fyrir næturgesti.
  10. Við brot á ofangreindum reglum hefur íbúi afsalað sér réttindum til að fá næturgesti um óákveðin tíma.
  11. Ef gestgjafi er lögráða (18 ára) er nóg að sækja um með eins sólarhrings fyrirvara. Gestgjafi þarf að sjá til þess að ef gestur eða herbergisfélagi er ekki lögráða, hafi öll leyfi borist fyrir fimmtudagskvöld ef gestakoma er um helgi.

 

Frjáls texti
Ef íbúi er með herbergisfélaga þarf íbúi að hafa fengið samþykki hans fyrir næturgest.


captcha