Hagnýtar upplýsingar fyrir nýja íbúa á heimavist

Hér eru ýmsar hagnýtar upplýsingar fyrir nýja íbúa sem eru að flyta á heimavistina.

Þegar íbúar koma á heimavistina þurfa þeir að hafa með sér:

  • Handsápu til að hafa á herbergi
  • Sæng og kodda
  • Sængurver, koddaver og lök
  • Handklæði 
  • Rúmteppi ef vill
  • Körfu eða annað hentugt undir óhreinan þvott
  • Herðatré

Leirtau, hnífapör og glös/könnur eru  ekki til staðar á herbergjum.
Hlífðarlök eru til staðar og hægt að fá til skiptanna í anddyri. Athugið að hlífðarlak þarf að vera á rúmdýnu og svo lak frá íbúa.

Íbúar fá sérmerkt þvottanet með tuskum og svampi. Íbúar fá þvottaefni til að þrífa herbergi og baðherbergi þar sem það á við. Ryksugur og moppur eru til staðar á hverri hæð.

Íbúar geta endurraðað húsgögnum á herbergjum en verða að skilja við þau eins og þau komu að þeim í upphafi. 

Aðeins má hengja upp myndir eða annað á veggi með "kennaratyggjói" til að koma í veg fyrir að málningin skemmist.

Íbúar á nýju vist hafa aðgang á herbergjum að örbylgjuofni og litlum ísskáp. Þeir íbúar sem eru á gömlu vist hafa ekki aðgang að ísskáp á herbergjum, en sumir koma með lítin kæliskáp með sér.

Íbúar geta fengið að geyma töskur á svokölluðu töskulofti.  Þá er aðstaða í kjallara til að geyma skauta, skíði, skíðaklossa o.s.frv.

Minnum á að íbúar þurfa að sækja um mötuneytis- og þvottahúsþjónustu heimavistarinnar innan viku frá komu íbúa á heimavist.