Ástráður félag læknanema með fræðslu fimmtudagskvöldið 1. mars kl. 20

Fimmtudagskvöldið 1. mars nk. kl. 20.00 ætla nokkrir 2. árs læknanemar að vera með fræðslu á setustofunni fyrir íbúa heimavistarinnar. Læknanemarnir eru á vegum „Ástráðs“ félags læknanema um forvarnarstarf.

Rætt verður t.d. um kynheilbrigði, ótímabærar þunganir og kynsjúkdóma.
Hvetjum íbúa að nýta tækifærið til að hitta læknanemana til að fræðast og forvitnast.