Besta tillagan í hugmyndasamkeppni um merki Lundar

Efnt var á dögunum til samkeppni um merki fyrir Lund sjálfseignarstofnun sem á og rekur Heimavist MA og VMA.  Öllum nemendum í MA og VMA var frjálst að taka þátt og var frestur til að skila inn tillögum til 24. mars s.l.

Peningaverðlaun fyrir bestu tillöguna voru alls 25.000 krónur  og er það Viktor Örn Valdimarsson nemandi í VMA sem hlýtur verðlaunin fyrir sína tillögu.  Merkið verður fljótlega til sýnis á heimasíðunni.

Við þökkum þeim sem tóku þátt í samkeppninni og óskum Viktori til hamingju.