Fyrsti fundur heimavistarráðs

=)))

Fyrsti fundur heimavistarráðs var haldin í gærkveldi og voru þar rædd ýmis málefni, sem og áætlanir fyrir þessa önn og endurbætur á húsgögnum heimavistar.

Áætlunin er að fara svona nokkuð rólega af stað meðan prófatíð er í MA en síðan spýta í lófana þegar henni lýkur.

Ef einhverjir hugmyndaríkir heimavistarbúar luma á góðum hugmyndum eða eitthvað varðandi það hvað þeir vilja sjá betra hérna á vistinni þá endilega hafa samband við heimavistarráð eða sendið þeim póst á heimavistarrad@heimavist.is 

Með kveðju

Heimavistarráð