Gangafundir með íbúum heimavistarinnar

Almennir fundir heimavistar s.k. gangafundir þar sem farið er yfir reglur og ýmis praktísk atriði með íbúum eru haldnir á hverju ári í upphafi haustmisseris. Nú þegar er búið að funda með íbúum á nýju vistinni og í kvöld verður fundað með íbúum gömlu vistarinnar.  Líkt og fram kemur í reglum heimavistarinnar er skyldumæting á fundina.