Gangafundir þriðjudaginn 5. september og miðvikudaginn 6. september

Þriðjudaginn 5. september og miðvikudaginn 6. september verða s.k. gangafundir á heimavistinni. Fundirnir eru upplýsingafundir fyrir íbúa þar sem farið er yfir ýmsar reglur og annað sem er ganglegt fyrir íbúana að vita af. Þá eru gangafundir einnig tækifæri til að sjá hverjir eru nágrannar og eins hverjir búa í næsta nágrenni, en fundunum er skipt niður eftir göngunum/hæðunum á nýju vist og síðan göngunum á gömlu vist. Tímasetningar á fundunum verða hengdar upp á nýju og gömlu vist og við minnum á að það er skyldumæting á fundinn.

Hlökkum til að hitta alla nýja og eldri íbúa og eiga góða stund saman