Gott jólahlaðborð

 

Heimavistarráð þakkar fyrir góða mætingu á jólahlaðborðið sem haldið
var í gærkvöldi. Við vonum að allir hafi skemmt sér vel og allir hafi verið ánægðir með úrslitin
í jólaskreytingakeppninni. Heimavistarráð tilkynnti síðan um jólagjafirnar frá heimavistarráði til vistarinnar
og í ár eru það nýtt sjónvarp sem er komið á þriðju hæð gömlu vistar ásamt tveimur nýjum og glæsilegum pool borðum í setustofuna. Hægt er að sjá mynd af svipuðu borði hér að neðan. Poolborðin verða síðan formlega vígð að loknum prófum í MA.




Heimavistarráð :)