Grunnskólanemendur í heimsókn á heimavistinni

Á hverju hausti fáum við hressa og skemmtilega nemendur úr 9. og 10. bekk en þessi heimsókn er hluti af heimsókn þeirra í framhaldsskólana; Menntaskólann á Akureyri og Verkmenntaskólann Akureyri.  Að þessu sinni komu nemendur frá Gunnskólanum á Raufarhöfn og Öxarfirði, Höfðaskóla, Þingeyjarskóla, Húnavallaskóla og Grunnskólanum á Blönduósi.
Nemendurnir fengu kynningu á heimavistinni sem íbúar tóku þátt í og boðið var upp á hressingu í setustofunni eins og venja er. 
Kærar þakkir fyrir komuna.

Fleiri myndir eru á facebook síðunni okkar - Heimavist MA og VMA