Hagnýtar upplýsingar fyrir nýja íbúa!

Hér eru ýmsar hagnýtar upplýsingar fyrir nýja íbúa sem eru að flyta á heimavistina.
Þegar íbúar koma á heimavistina þurfa þeir að hafa með sér:
Sæng og kodda.
Sængurver, koddaver og lök.
Handklæði.
Rúmteppi ef vill.
Körfu eða annað hentugt undir óhreinan þvott.
Herðatré.
Leirtau, hnífapör og glös/könnur eru ekki til staðar á herbergjum.
Hlífðarlök eru til staðar og hægt að fá til skiptanna í anddyri. Athugið að hlíðarlak þarf að vera á rúmdýnu og einnig lak frá íbúa.
Íbúar fá þvottanet með tuskum og svampi. Íbúar fá þvottaefni til að þrífa herbergi og baðherbergi þar sem það á við. Ryksugur og moppur eru til staðar á hverri hæð fyrir sig.
Íbúar geta endurraðað húsgögnum á herbergjum en verða að skilja við þau við brottför af heimavist eins og þau komu að þeim í upphafi.
Aðeins má hengja upp myndir eða annað á veggi með "kennaratyggjói" til að koma í veg fyrir að málningin skemmist. Bendum á að ekki er hægt að hengja upp ledborða.
Íbúar á nýju vist hafa aðgang á herbergjum að örbylgjuofni og litlum ísskáp. Þeir íbúar sem eru á gömlu vist hafa ekki aðgang að ísskáp á herbergjum, en sumir koma með lítin kæliskáp með sér.
Íbúar geta fengið að geyma töskur á svokölluðu töskulofti. Þá er læst aðstaða í kjallara til að geyma skauta, skíði, skíðaklossa, hjól o.s.frv.