Heimavist MA og VMA opnar nýja heimasíðu

Ný heimasíða Heimavistar MA og VMA hefur verið opnuð. Markmiðið er að heimasíðan verði lifandi, fróðleg og skemmtileg og eru nemendur og foreldrar hvattir til að taka þátt í mótun hennar. Enn er verið að vinna í nokkrum hlutum síðunnar en það er von okkar að með samstilltu átaki takist að ljúka gerð hennar á næstunni.  Hægt er að senda ábendingar á netfangið heimavist@heimavist.is.