Hneyksli kvöld 9.febrúar

 

Næturvörður vistarinnar varð var við mikið hneyksli í kvöld, er íbúi vistarinnar, Einar Bjarni Björnsson, sást borga fyrir Domino's pizzu hér niðri í anddyri heimavistar. Eins og margir vita vinnur Einar sem sendill veitingahússins Greifans og því ekki skrítið að þessi sjón hafi komið næturverði í opna skjöldu.

Við biðjumst velvirðingar er meðfylgjandi mynd gæti farið fyrir hjartað á viðkvæmum sálum.

Hér sést Einar gera vingott við sendil Domino's.