Húsnæðisbætur

Ný lög um húsnæðisbætur tóku gildi í upphafi ársins. Við þessar breytingar taka húsnæðisbætur við af húsaleigubótum.  Rétt er að benda á að nokkrar breytingar hafa átt sér stað við þessi nýju lög sem vert er að kynna sér.  Þannig skiptir máli hvort að íbúi eða leigutaki er orðinn lögráða eða ekki.  Ef viðkomandi er undir lögaldri er sótt um húsnæðisbætur til skrifstofu viðkomandi sveitarfélags þar sem íbúinn á lögheimili.   Ef íbúinn er orðinn lögráða er sótt um til skristofu Vinnumálastofnunar. Allar nánari upplýsingar er að finna á  www.husbot.is