Jólahlaðborð

Kæru íbúar.

Hið árlega jólahlaðborð Heimavistar verður haldið 3.des. næst komandi. Það hefst klukkan 18:00 og stendur u.þ.b til 20:00. Það verður margt girnilegt, framandi og gott á borðum og við hvetjum ykkur öll til þess að mæta ! Reyndar eru VMA-ingarnir byrjaðir í prófum, en hvað er betra en að taka sér smá frí frá prófalestri og kíkja niður í mötuneyti og renna í jólaskapið með félögunum og fitna af góðum mat? Við verðum búin að skreyta salinn og að sjálfsögðu verður jólatónlist.

Þannig að við biðjum bara sem flesta á heimavist að mæta og hafa notalega stund með okkur öllum!

Jólakveðja,

heimavistarráð. 

 

ATH!! Snyrtilegur fatnaður er skylda! Þeir sem ekki mæta í snyrtilegum fötum fá ekki að borða.. ! :D