Jólaskreytingakeppni! VÚHÚ!

Þá er komið að hinni árlegu jólaskreytingakeppni heimavistarinnar. Að venju verður keppt á milli ganga/hæða. Skreytingar skulu vera komnar upp þann 4. desember til að vera gildir þáttakendur í keppninni.

Dómarar munu verða hinar guðdómlegu nöfnur í þvottahúsinu, Sigrún Svava og Svava.

Eins og ævinlega eru vegleg verðlaun handa sigurvegurum. Verðlaunin verða veitt á jólahlaðborðinu þann 6. desember.

Ykkar ástkæra,

Heimavistarráð