Kæru íbúar !

Halló halló elskurnar okkar,

Nú er illt í efni! Svo virðist sem fötin okkar bara strjúki burt.

Ef þú rekur flóttafataheimili inná herberginu þínu, þá minnum við á það að fötunum þykir voða vænt um Sigrúnu og Svövu í þvottahúsinu, þeim þykir voða vænt um þau.

Þannig að ef þú finnur föt sem þú átt ekki, hvort sem að þau hafi óvart lent í hólfinu þínu eða þig hefur vantað föt á djammið þá væri alveg yndislegt að þú gætir bara skilað þeim aftur í þvottahúsið. Sumir, ef ekki lang flestir eiga mjög dýr föt, og þó að þú fáir 13.000 kr. peysu fría í hólfið þitt er það ekkert sniðugt ef þú týnir svo 26.000 kr. gallabuxnum í staðinn.  

Nú ef einhver er feiminn, hefur t.d. fengið vitlausar nærbuxur þá þarf enginn að vita af því, sá hinn sami getur bara rennt því í gegn með hinum þvottinum. 

Kveðja,

Heimavistarráð sem vill ekki enda nakið fyrir jól :)